föstudagur, nóvember 01, 2002

Blogg bloggedí blogg blogg blogg...
Ég er að fara á grímuball á morgun með hinum vitleysingunum í vinnunni. Við stelpurnar ætlum að vera nunnur og ég ætla að vera nunna dauðans (allt of mikið máluð, með allt of langar gervineglur, í allt of druslulegum nælonsokkabuxum og í allt of háum hælum). Nunnunafnið mitt er systir Mary Jane! Svo verða þarna systir Victoria Secret og systir Karamella og fleiri sem eiga eftir að finna sína innri nunnu. Við erum líka búnar að æfa atriði úr Sister Act og við verðum laaaaaangflottastar!
Eníveis, ég ætla að halda áfram að vinna, ég er sko búin kl 14 í dag svo að ég þarf að klára milljón hluti fyrir þann tíma, svo ætla ég í bæinn á gellubílnum hennar mömmu og kaupa mér föt, snyrtivörur og glanstímarit áður en ég eyði laununum mínum í eitthvað álíka fáránlegt og mat og klósettpappír og reikninga. Hah!