þriðjudagur, júlí 02, 2002

Úff pjúff, ég er komin aftur úr sólarferðalaginu mínu, sem heppnaðist ágætlega nema að það var varla hægt að finna sól á landinu um helgina. Hverjum datt eiginlega í hug að Ísland væri góður staður til að búa á??? Ef ég hefði verið víkingur hefði ég farið beint framhjá Íslandi og ekki stoppað fyrr en á Flórída í fyrsta lagi! Eníveis, ég hef ekkert mikinn tíma hérna núna, ferðasagan kemur síðar, stay tuned...
Úúúú, ég er komin í 4 manna final í Surfvivorleiknum, takk kærlega fyrir, allir sem hafa stutt mig í gegnum þetta! Ég var að enda við að klára og senda verkefni vikunnar og nú er bara að treysta á guð og gæfuna (og vinina), þetta er allt að koma! Munið að það er hægt að kjósa strax á miðnætti á morgun!